Frumuskipting fósturvísa
Frjóvgun á sér venjulega stað þegar eggi og sáðfrumum er blandað saman á rannsóknastofu. Daginn eftir eggheimtu eiga tveir forkjarnar að sjást í eðlilega frjóvguðu eggi. Annar forkjarninn inniheldur erfðaefni frá egginu og hinn frá sáðfrumunni. Síðar sama dag renna forkjarnarnir saman og fyrsta frumuskiptingin á sér stað.
Næstu daga heldur fósturvísirinn áfram að skipta sér. Tveimur dögum eftir eggheimtu ætti hann að hafa 4-6 frumur og á þriðja degi 8-12 frumur. Á fjórða degi þéttast frumurnar saman og skil milli þeirra hverfa. Þá kallast fósturvísirinn mórúla.
Eftir fimm til sex daga ræktun hefur fósturvísirinn að jafnaði náð kímblöðrustigi og inniheldur þá um 150-200 frumur. Á þessu stigi hefur hann stækkað umtalsvert og frumurnar sérhæfst í tvo meginhópa. Innri frumuþyrpingin er fyrsti vísir að fóstrinu sjálfu, en ytri frumurnar mynda síðar fylgjuna.
Á sama tíma verður egghjúpurinn, sem umlykur fósturvísinn, sífellt þynnri. Áður en fósturvísirinn getur fest sig í legslímhúðinni myndast op á egghjúpnum sem gerir kímblöðrunni kleift að losna úr hjúpnum og hefja ígræðslu í slímhúð legsins.
Ræktun fósturvísa fram á kímblöðrustig veitir fósturfræðingum mikilvægar upplýsingar um þroska þeirra. Þær upplýsingar geta auðveldað val á fósturvísi til uppsetningar og þannig aukið líkur á þungun.

Myndin sýnir fósturvísi á mismunandi stigum ræktunar (D=dagar).